Októberfærslan...hehe

Líf mitt hefur einfaldast mikið við það að flytja hingað norður (já, Hólmvíkingar segjast flestir búa fyrir norðan þó á Vestfjörðum séu). Ég er ekki lengur andvaka á nóttunni og dauðþreyttur á daginn eins og fyrir sunnan. Og gott ef ég fæ ekki líka meira út úr svefninum hérna. Andleg þreyta hefur minnkað til muna en aftur á móti er ég alveg úrvinda í skrokkinum eftir daginn (mikil breyting). Hérna dotta ég aldrei í vinnunni, það er einfaldlega ekki fræðilegur möguleiki, enda er ég að gera eitthvað hverja einustu sekúndu, líka í kaffipásunum. Hjá borginni var vinnan í hrikalegum skorpum, en hér er jafnt álag allan daginn, sem mér líkar mun betur. Ég sat fastur í bílum í marga klukkutíma á dag í Reykjavík, bæði í vinnunni, og utan hennar. Hérna geta liðið 2-3 dagar án þess að ég svo mikið sem setjist inní bíl. Hér er ég rúma eina mínútu að fara gangandi í vinnuna (fyrir sunnan: 10-15 mínútur akandi,  tæplega 30 mínútur hjólandi, um og yfir klukkutími gangandi) og þegar Café Riis er opið (bar/veitingastaður) tekur það sömuleiðis ekki nema tæpa mínútu að komast þangað fótgangandi. Eina þjónustan (sem ég nota) sem er nógu langt í burtu frá heimilinu til að ég aki þangað er sjoppan, búðin og sundlaugin. Samt er varla að bílvélin nái að hitna á leiðinni þangað, kannski á bakaleiðinni! Svo ég minnist nú á eitthvað neikvætt þá er auðvitað leiðinlegt að geta ekki hitt fjölskylduna og vinina í Reykjavík hvenær sem er.

Sunnudaginn 7. október síðastliðinn keyrði ég á ref utarlega í Steingrímsfirðinum þegar ég var á leið heim frá Reykjavík. Ég er því núna búinn að aka yfir og drepa tvo refi á ekki nema rúmlega ári á þessum ferðum mínum á milli (hitt skiptið gerðist nálægt Bifröst/Hreðavatnsskála). Ég skil ekki þessa óheppni því að ég er viss um að sumir keyra um sveitirnar ævina út án þess að lenda í þessu í eitt skipti. Bæði tilfellin gerðust í myrkri og á þann hátt að þeir voru á harðaspretti yfir veginn og í bæði skiptin snarhemlaði ég en allt kom fyrir ekki. Annað hvort varð ég að sætta mig að keyra yfir þá, eða keyra út af á 90 kílómetra hraða. Maður verður að vera búinn að taka ákvörðun fyrirfram um það hvað maður gerir við svona aðstæður. Að sjálfsögðu fórnar maður ekki sjálfum sér fyrir dýr, en gerir það fyrir manneskju. Og maður ekur ekki út af vegna refs en gerir það ef stórt dýr eins og hestur er á veginum sem getur kastast inní bílinn. Sömuleiðis myndi maður ekki aka fram af þverhnípi, jafnvel þó að dýrið væri stórt.

En nú að bókamálum! Ég var að ljúka við bókina „Konungsbók“ eftir Arnald Indriðason á dögunum. Til að koma með stuttan dóm þá fannst mér hún frekar þung í lestri miðað við aðrar bækur eftir hann og hún innihélt mikið af nöfnum sem þurfti að melta. Aftur á móti hafði hún þau áhrif á mig að fá mig til að hugsa um og gera mig stoltan af þeim arfi sem forfeður okkar skildu eftir handa okkur, og þá er ég auðvitað að tala um skinnhandritin. Bókin byrjar mjög rólega en verður hörkuspennandi í lokin. En samt, ef þú hefur ekki kynnst Arnaldi áður, byrjaðu þá fyrst á að lesa sögurnar um Erlend og félaga. Í augnablikinu er ég að lesa bókina „Viltu vinna milljarð,“ eftir rithöfundinn Vikas Swarup og gerist hún að mestu í fátæktrahverfum Indlands. Hún verður sífellt meira spennandi með hverjum kaflanum og er skrifuð í hálfgerðum dagbókarstíl en þar sem ég er ekki búinn með hana ætla ég að bíða með frekari gagnrýni. Næst mun ég svo byrja á sakamálasögunni „Farþeginn,“ eftir Pál Kristin Pálsson. Hlakka til! En nóg í bili.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er sagt allt sé þegar þrennt er, svo líklega áttu eftir að keyra yfir einn ref í viðbót ha, ha.

Kveðja Mútta

Kristín G. (IP-tala skráð) 18.10.2007 kl. 09:01

2 Smámynd: Guðmundur Björn Sigurðsson

Úff, ég verð að fara að hætta að keyra

Guðmundur Björn Sigurðsson, 18.10.2007 kl. 20:11

3 Smámynd: Mist

Þú ert ekkert smá óheppinn. Dýravinurinn sjálfur! 

En ég var annars bara að rekast á þetta blogg fyrst núna. Er búin að vera netlaus svo lengi og var ekki búin að kíkja á folk.is síðuna þína lengi. Gott að geta fylgst með ævintýrum þínum fyrir norðan/vestan... :) 

Mist, 21.10.2007 kl. 14:01

4 Smámynd: Guðmundur Björn Sigurðsson

Já mér fannst afar leiðinlegt að þurfa að lenda í þessu aftur. En sem betur fer held ég að greyið hafi drepist samstundis.

Frábært að fá blog.is netvin, ég hafði heldur ekki hugmynd um að þú værir hér, þarf að kíkja á síðuna þína. En já, ég ætla að koma hér með örlítið  reglulegri bloggfærslur en ég gerði á fólk.is

Guðmundur Björn Sigurðsson, 21.10.2007 kl. 18:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Guðmundur B. Sigurðsson

Höfundur

Guðmundur Björn Sigurðsson
Guðmundur Björn Sigurðsson
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Bloggin

Vinir, fjölskylda eða aðrir

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband