Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2013

Frí og þægilegheit

Heil og sæl öll. Cool Núna er ég búinn að vera í fríi síðan 12. júlí, en það var síðasti vinnudagurinn minn hjá Fisk Seafood og nú tekur við bið eftir nýju starfi, helst á Ísafirði en ég vona bara það besta og er nokkuð bjartsýnn. Ég hef samt ekki setið auðum höndum en ég byrjaði á að kíkja í bústað með fjölskyldunni við Úlfljótsvatn í eina viku, sem var dásamlegt og margt brallað þar. Gógó frænka kom líka í bústaðinn ásamt Hjalta og Dagnýju og það var meðal annars farið í aparóluna, grillað, farið í göngutúra, farið í bíltúr upp að Skálholti og í Búrfellsstöð á sýningu (slepptum því reyndar að kíkja á vindmillurnar í þetta sinn) og svo var kíkt út á Úlfljótsvatn og að sjálfsögðu slakað á í heita pottinum, en við vorum í þetta sinn í efsta sumarbústaðnum sem var bara ágætt (aðeins minna á kafi í trjánum en í miðjubústaðnum þó litlu muni). Eftir að í borgina var komið hóf ég að flíkka upp á Applausinn en ég lét laga pústkerfið á honum og keypti nýjan afturkút, massaði hann og bónaði, skipti um teppi í skottinu, þreif sætin, mælaborðið og golfið og að lokum hreinsaði ég alla ryðbletti í burtu og lakkaði og glæraði yfir svo bíllinn er orðinn nánast eins og nýr, ilmandi og tandurhreinn, bara glæsilegur! Ég toppaði svo yfirhalninguna með því að splæsa í flotta hjólkoppa á hann og nú hlýtur kagginn að seljast. Smile Glæsikerran er föl fyrir 260 þúsund en verðið er nú alveg viðsemjanlegt, bara endilega að gera mér tilboð og ég skoða málið. Wink

3 dagar enn

Síðasti vinnudagur er eftir 3 daga og þá taka við ný ævintýri. Úff, vonandi er ég þó ekki að gera stór mistök, en ég veit það aldrei nema að þora að stökkva í djúpu laugina, þannig er lífið. Það verður erfitt að skilja við alla vinina og það góða fólk sem hér er, og þennan góða bæ, og þennan skemmtilega og fjölbreytta vinnustað. En ég er búinn að gera upp hug minn, ég ætla að freista gæfunnar, ævintýri skal það vera. Ég er að minnsta kosti ekki að taka mikla áhættu miðað við hvað ég var með í laun, þau verða að minnsta kosti ekki mikið lægri annars staðar. Um helgina fer ég á ættarmót á Hólmavík og á sunnudaginn bruna ég svo í bústað við Úlfljótsvatn og verð þar með fjölskyldunni (allavega flestum úr henni, það á eftir að koma í ljós), það verður fjör! Svo ætla ég að eyða smá tíma í Reykjavíkinni til að hitta vini og fleiri ættingja! ...og á meðan á öllu því stendur verð ég sækjandi um störf og vinnandi í því að selja bílinn minn og kaupa nýjan (notaðan þó, vitanlega!), en ég er nú þegar búinn að búa til auglýsingu fyrir bílinn minn á síðunni Bland.is. Í dag eftir vinnu mætti mér hitaveggur er ég gekk út af vinnustaðnum, en það var 21 stigs hiti, sól og nánast blankalogn úti, ekki slæmt það! Smile

Um bloggið

Guðmundur B. Sigurðsson

Höfundur

Guðmundur Björn Sigurðsson
Guðmundur Björn Sigurðsson
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Bloggin

Vinir, fjölskylda eða aðrir

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband