Bloggfærslur mánaðarins, október 2011

Tússtafla

Í dag keypti ég litla tússtöflu. Fékk allt í einu þá flugu í höfuðið að ég gæti notað hana til að æfa mig í að skrifa látlaust niður beygingar á spænskum sögnum og þurrkað þær jafnóðum út. Sleppa semsagt við allt pappírsflóðið svona þegar hægt er. Svo er ég kominn með nagla uppi á vegg fyrir framan rúmið þannig að ég get látið töfluna hanga þar með nýjum spænskum orðasamböndum og slíku. Tja, eða bara einhverju öðru sem ég þarf bráðnauðsynlega að muna hvað og hvað skiptið. Svo bind ég líka nokkra von við spænska bloggið mitt þar sem ætlunin er að spreyta sig á spænskunni flesta daga. Það á vonandi eftir að halda mér betur við efnið og hraða náminu. Auk þess er það kostur að hafa þetta sér til að drekkja ekki þessu bloggi og svo verður það eins og hálfgerð námsdagbók þar sem ég get alltaf kíkt aftur á gamlar færslur til upprifjunar. En nóg af spænskublaðri í bili! Ég skal ná!!!

Sannarlega ofstækissamtök

 http://www.mbl.is/frettir/innlent/2011/10/20/likir_storu_systur_vid_ofstaekissamtok/

Þær vilja láta loka Einkamálum.is, hvaða rugl er þetta? Ég var með kærustu í tvö ár sem ég kynntist í gegnum þessa síðu, sem er það besta sem hefur hent mig á æfinni. Ég þekki líka fólk af báðum kynjum sem kynntist makanum sínum í gegnum þessa stefnumótasíðu. Þannig að mín samstaða með þessum konum er núna engin og ég tek undir með Brynjari að þetta eru ofstækissamtök. Ekki rétta leiðin. Þeir sem kalla Einkamál.is ,,sorasíðu'' eru að mynda sér skoðun um eitthvað sem þeir vita ekki nóg um til að geta gert það. Þetta er alhæfing og alhæfingar flokkast undir fordóma. Svartir sauðir eru alls staðar og þeir myndu finna sér annan vettvang til að fremja glæpi þó að Einkamálum.is yrði lokað. Aftur á móti, ef Einkamálum.is yrði lokað myndu þúsundir missa frábæra leið til að finna ástina.


Um bloggið

Guðmundur B. Sigurðsson

Höfundur

Guðmundur Björn Sigurðsson
Guðmundur Björn Sigurðsson
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Bloggin

Vinir, fjölskylda eða aðrir

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 792

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband