Bloggfærslur mánaðarins, mars 2013
29.3.2013 | 04:39
Páskarnir
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.3.2013 | 18:19
Föstudagur!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.3.2013 | 23:01
Fjölbreytt helgi á Króknum
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.3.2013 | 21:31
Væl, kvein og leiðindi
Jæja, þá er maður búinn að ganga frá skattaskýrslunni fyrir 2012, það var nú reyndar ekki flókið en gott að vera búinn að þessu. Þetta er orðið allt annað líf eftir að hægt er að gera þetta rafrænt alfarið. Ég er allur að koma til núna, mér finnst kvefið vera að skána og ég er á verkjalyfjum við bakverkinum en ég held að hann sé líka að lagast. Ég var alveg að farast á þriðjudaginn, fékk mikla verki við að rísa upp úr rúminu og það var vont að ganga og sömuleiðis að setjast og standa upp. Ég ákvað því að vera heima þann daginn, sem var eini dagurinn minn frá vinnu síðan ég byrjaði í Fiskiðjunni. Ég skellti mér til læknis og í lyfjabúð að fá verkjalyf og var svo heima mest allan daginn fyrir utan að ég fór út í stuttan göngutúr, samkvæmt læknisráði, áður en ég fór að sofa. Svo er gott að fara í heita pottinn líka og það er sannarlega ekki vandamál fyrir mig því ég hef farið í sund að minnsta kosti einu sinni til tvisvar í viku í all nokkur ár. En jæja, ég læt þetta duga í dag áður en einhver hringir í vælubílinn fyrir mig eða deyr jafnvel úr leiðindum á undan. Lifið heil
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.3.2013 | 21:34
Góan
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.3.2013 | 23:22
Borgarleiðangur og fleira
Nú er bíllinn minn loksins í lagi, tja, allavega nógu mikið til að ég komst til Reykjavíkur um helgina. Þetta var skemmtileg ferð og ég heimsótti vini og fjölskyldu og endaði meira að segja á ,,djamminu'' þó það hafi reyndar ekki verið í planinu. Ég fékk líka heldur betur adrenalín spark í ferðinni en ég fór nefninlega í heimsókn til ömmu og afa í móðurætt, sem er venjulega mjög róandi og notalegt... og það var það, þangað til að ég kvaddi þau og tók lyftuna niður af 6. hæð í húsinu þar sem þau búa. Um leið og lyftan fór af stað þá heyrði ég mikla skruðninga og lyftan hristist til og ég fann hvernig hún datt skyndilega niður og ég hugsaði nú bara ,,nú er þetta búið, ég er dauður!'' En hún fór reyndar ekki mjög langt, bara einn og hálfan metra en það vissi ég ekki og var með hjartað í buxunum og beið eftir því sem koma skyldi, hvort lyftan dytti aftur niður eða yrði kyrr þar til mér yrði bjargað. Ég þorði allavega varla að hreyfa mig og hjartað var á fullu, og þó að skynsemin segi manni að lyftur séu með þrefallt öryggiskerfi þá er erfitt að hugsa rökrétt við þessar aðstæður fastur inni í þröngu rými með nokkra tugi metra af frjálsu falli fyrir neðan sig. En það var auðvitað ekkert að óttast og lyftuviðgerðarmaður opnaði hurðina fyrir mig og ég skreið úr lyftunni sem hafði staðnæmst á milli hæða. Ég tók stigann niður, takk fyrir, þó að kallinn hafi verið búinn að laga vandamálið áður en ég fór!! En jú, að sjálfsögðu tekur maður lyftuna í næstu heimsókn, það er eins gott til að þróa ekki einhverja lyftufælni!!!
Góan er hafin og það þýðir bara eitt... að það styttist í góuveisluna á Hólmavík, nánar tiltekið næsta laugardag. Ég verð nú eiginlega að leyfa mér að fara, ég missti jú af þorraveislunni sem ég var búinn að hlakka svo til að mæta í. Svo er maturinn líka miklu betri á góunni, lambakjöt og fleiri tegundir af kjöti, djúpsteiktar rækjur og fleira og skemmtiatriði og ball eftir matinn. Ég vona bara að veðrið leyfi mér að fara, en eins og er þá er alveg brjálað veður hér á Sauðárkróki og þegar ég fór heim eftir vinnu í dag þá var skyggnið á köflum núll metrar svo að ég varð oft að stöðva bílinn og bíða eftir að sjá einn eða tvo metra fyrir framan bílinn. Þetta er með því verra sem ég hef séð innanbæjar hvað skyggni varðar en þannig lagað ekkert svo svakalegur snjór, allavega ekki enn. Ég var satt best að segja steinheppinn að sleppa frá Reykjavík á Krókinn því að bara rétt eftir að ég renndi í bæinn var orðið brjálað veður og allar leiðir ófærar. Meira næst
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Guðmundur B. Sigurðsson
Tenglar
Mínir tenglar
- Gummi bloggar á spænsku Bloggið mitt þar sem ég æfi mig í að skrifa og tjá mig á spænsku.
Eldri færslur
2024
2021
2020
2019
2018
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Bloggin
Vinir, fjölskylda eða aðrir
- Haddi frændi
-
Pétur Olsen og co
Fyrrverandi vinnufélagi minn og vinir hans í sameiginlegu bloggi, bara flott hjá þeim! - Bergþór bróðir
- Elín frænka
- Þórhallur
- Ari
- Mary
- Anna Hendrix
- Mist
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar