22.10.2007 | 22:44
Skvamp!
Er að spá í að fara að stunda sund af alvöru eftir vinnu mánudaga til fimmtudaga. Ég og Haddi frændi fórum saman í íþróttahúsið, hann á fótboltaæfingu og ég í sund á meðan. Tók 30 ferðir sem er um 750 metrar og fór svo í heita pottinn í korter. Ég ætla að reyna að taka 40 ferðir í hvert skipti, semsagt einn kílómetra á dag af bringusundi. Tja, eða öðru sundi en ég er reyndar skítlélegur í öllu nema bringunni og kafsundi. Hmm, þetta eru pælingar.
Magnað dæmi, hér er allt krökkt af Rjúpum! Þær vappa hér um í hópum innanbæjar, eitthvað sem sést aldrei fyrir sunnan. Hvítar eru þær orðnar svo það hlýtur að taka af allan vafa um að veturinn sé kominn, ef einhver efast enn!
Um bloggið
Guðmundur B. Sigurðsson
Tenglar
Mínir tenglar
- Gummi bloggar á spænsku Bloggið mitt þar sem ég æfi mig í að skrifa og tjá mig á spænsku.
Eldri færslur
2024
2021
2020
2019
2018
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Bloggin
Vinir, fjölskylda eða aðrir
- Haddi frændi
-
Pétur Olsen og co
Fyrrverandi vinnufélagi minn og vinir hans í sameiginlegu bloggi, bara flott hjá þeim! - Bergþór bróðir
- Elín frænka
- Þórhallur
- Ari
- Mary
- Anna Hendrix
- Mist
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 978
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Mér líst vel á sundið. Ég er enn að tuða yfir því að ég þurfi að fara að hreyfa mig en ekkert gerist! Skrítið?
Svo verðum við að taka gönguklúbb næst þegar þú kemur suður.
Mist, 26.10.2007 kl. 15:08
Alveg bókað mál!
Guðmundur Björn Sigurðsson, 27.10.2007 kl. 18:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.