1.9.2007 | 21:48
Fullkomin helgi
Ég átti alveg fullkomna helgi, finnst mér. Í fyrsta lagi fékk ég frítt far suður til Reykjavíkur um helgina, svo svaf ég út á laugardaginn, ég fékk ókeypis klippingu og er því laus við margra mánaða hárvöxt (og er því alveg gjörbreyttur í útliti), ég skrapp í bíó, náði að þvo vinnufötin mín sem önguðu svoleiðis af rækju og núna sit ég við tölvuna og sötra bjór, og horfi á sjónvarpið með öðru auganu...alger afslöppun, þetta gerist ekki betra! Ég er reyndar að fara að vinna á morgun, en ég hef litlar áhyggjur af því, enda get ég bara lagt mig á leiðinni norður, ahh! Það er sko hægt að blogga um ekki neitt, en eitthvað er betra en ekkert!
Um bloggið
Guðmundur B. Sigurðsson
Tenglar
Mínir tenglar
- Gummi bloggar á spænsku Bloggið mitt þar sem ég æfi mig í að skrifa og tjá mig á spænsku.
Eldri færslur
2024
2021
2020
2019
2018
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Bloggin
Vinir, fjölskylda eða aðrir
- Haddi frændi
-
Pétur Olsen og co
Fyrrverandi vinnufélagi minn og vinir hans í sameiginlegu bloggi, bara flott hjá þeim! - Bergþór bróðir
- Elín frænka
- Þórhallur
- Ari
- Mary
- Anna Hendrix
- Mist
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hæ gummi minn
frábært hjá þér að hafa skipt um vinnu og vera komin á nýjan stað enn þín verður sárt saknað
hafðu það gott
anna
Anna Hendrix (IP-tala skráð) 2.9.2007 kl. 04:09
Takk Anna mín! Ég er bara þvílíkt ánægður að hafa þorað að skipta um vinnu, þó ég hafi verið í öruggu starfi og með 3 ára reynslu hjá borginni, og því í raun engin sérstök ástæða til að hætta. En þetta var bara komið nóg og ég er líka á hærra kaupi hérna. Ég hefði svosem ekki þurft að flytja úr bænum en mig var bara búið að dauðlanga lengi til að prófa að búa utan við höfuðborgarsvæðið. Ég er að fíla þetta í botn. Sakna ykkar líka, lofa að kíkja reglulega í bæinn!
Guðmundur Björn Sigurðsson, 2.9.2007 kl. 17:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.