29.7.2013 | 00:50
Frí og þægilegheit
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.7.2013 | 00:00
3 dagar enn
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.6.2013 | 23:26
Næsta stopp: Hólmavík
Nú er um að gera fyrir mig að pakka niður tölvunni strax eftir þessa færslu og vera búinn að pakka öllu öðru líka svo ég geti brunað til Hólmavíkur strax eftir vinnu á morgun. Hamingjudagarnir eru semsagt núna um helgina, alveg satt í þetta sinn!! Ég var þó sannarlega ekki kyrr um síðustu helgi þó ég hafi haldið að hamingjudagarnir á Hólmavík væru þá, heldur fór ég í 1209 km rúnt frá Sauðárkróki til Bíldudals í gegnum Patró og Tálknó, svo til Ísafjarðar og loks til baka á Krókinn með stoppi á Hólmavík.
Ég er alveg kominn á þá skoðun að Bíldudalur sé í fallegasta bæjarstæði á Vestfjörðum, ef ekki á landinu öllu. Þvílík fjallafegurð allt um kring, og skjólið sem fjöllin veita og hafið og fuglarnir, húsin og bara allt! Og þar verða mörg atvinnutækifæri í framtíðinni svo hver veit hvað gerist hjá manni. En þó held ég að það sé líklegra að ég haldi mig 100% við það að komast á Ísafjarðarsvæðið því að þar eru svo miklu fleiri möguleikar og bærinn auðvitað miklu stærri og minna einangraður (þó það hjálpi Bílddælingum reyndar mjög mikið að það sé áætlunarflug þaðan til Reykjavíkur, eins og er á Ísó).
Ég myndi svo segja að Ísafjörður sé í næst fallegasta bæjarstæðinu og bærinn sjálfur sá fallegasti að mínu mati! Þarna er allt til alls; lágvöruverðsverslun; sérverslanir; þjónusta af ýmsu tagi; bíó; menning (t.d. Aldrei fór ég suður!); gamall, gróinn og sjarmerandi miðbær; skólar á öllum menntunarstigum; góðar flugsamgöngur og malbik alla leið til Reykjavíkur (en reyndar brjálæðislega löng akstursleið, en ég hef gaman af því að keyra og svo er Hólmavík á miðri leið!) og veðursæld í skjóli fjallanna og alvöru snjór á veturna en ekki bara slydda!
Eini mínusinn við Ísó fyrir mig er að sundlaugin þarna er innilaug með bara einum litlum heitum potti og það er dýrt í sund, en það er þó hægt að komast í flottari laug í Bolungarvík skilst mér, og svo er alveg frábær útisundlaug með þægilegum heitum pottum á Suðureyri sem er bara örstutt frá með bíl. Ég kom einmitt við á Suðureyri og skellti mér í pottana, en bærinn er sá eini sem hefur hitaveituvatn á Ísafjarðarsvæðinu.
Það verður svolítið erfitt að segja skilið við vinina sem ég hef eignast á Króknum og að þurfa að byrja á byrjuninni að kynnast fólki á nýjum stað. En þetta er þó mun léttara fyrir mig en flest annað fólk því að ég er einfari í eðli mínu og kann mjög vel við einveru annað veifið, ég meira að segja þarfnast hennar. Þó ég elski að eyða tímanum með fjölskyldunni og vinum mínum (og þeir skipta mig líka öllu máli í lífinu, bara svo það sé alveg klárt), og ég muni ávallt ferðast mikið til að hitta þá sem ég hef flutt í burtu frá, þá líður mér yfirleitt mjög vel einum í heilu dagana án félagslífs. Ég fæ mikið út úr félagsskap sem ég fæ á vinnustöðum og svo vindur sá félagsskapur alltaf upp á sig og færist út fyrir vinnustaðinn og áður en maður veit af er maður kominn með góða vini, hvar sem maður plantar sér niður.
En nú er nóg komið af pælingum í bili. Best að fara að pakka niður, það verður fjör á morgun. Allir að mæta á hamingjudaga um helgina, sjáumst þar.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.6.2013 | 15:37
Uss, kjáni ég
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.6.2013 | 00:41
Hamingjan framundan
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.6.2013 | 01:03
Hress gestur og rafmagnsfjör!
Frábært, æðislegt. Loksins fékk ég gest , þann fyrsta úr fjölskyldunni síðan ég flutti hingað norður fyrir sex mánuðum. Og hann kom með ,,stæl!'' Bergþór Njáll mætti galvaskur með flugi klukkan sex að kvöldi á föstudaginn síðasta. Það munaði litlu að ég yrði of seinn að sækja hann því að Applausinn minn heldur áfram að plaga mig með fleiri og fleiri bilunum, rétt eins og hann viti að ég hyggist selja hann og að hann sé að reyna að koma í veg fyrir að fara til nýs eiganda. En ég vil ekki drepa fólk úr leiðindum sem hefur ekki áhuga á þessu bílaveseni sem er að gera mig gráhærðan svo að ég er búinn að setja þann pakka hérna neðst í færsluna, ég bara varð að fá útrás ! En allavega. Við áttum óborganlega helgi, við grilluðum saman, drukkum öl, rúntuðum um stórt svæði og gerðum margt fleira skemmtilegt. Á laugardaginn fórum við að Grettislaug en þar er afar fallegt. Þar eru brött og formfögur fjöll, bjarg skammt frá sem steypist út í sjó, Drangey örstutt frá og mun tignarlegri en frá Króknum, hestar og önnur dýr á svæðinu og svo auðvitað laugarnar sjálfar (hin náttúrulega Grettislaug og Jarlslaug). Við fengum leyfi til að grilla á staðnum og fengum lánað grill, borð og allt og við grilluðum svínarif sem var auðvitað engin leið að borða nema með höndunum, sem var bara þægilegt. Svo eyddum við löngum tíma í laugunum sem voru vel heitar. Ég dýfði fæti í sjóinn en hann var allt of kaldur ennþá svona snemma í júní, ja ég lagði allavega ekki í þetta að sinni. Svo var haldið til baka á Krókinn (bíllinn hrökk í gang sem betur fer) og fengið sér smá öl. Sunnudagurinn fór aðallega í leti og stuttan útsýnisrúnt upp í skíðabrekkuna við Tindastól og svo meiri leti! En nú voru góð ráð dýr, bíllinn náði að afhlaða sig á örskömmum tíma á meðan við vorum inni og brósa vantaði far til baka út á flugvöll. Ég náði sem betur fer að hlaða geyiminn í nokkrar mínútur og svo tók ég sénsinn að skemma kannski hleðslutækið mitt (sem ég er nýbúinn að kaupa dýrum dómum) og ræsti bílinn með tækið ennþá tengt, og það tókst án skemmda svo að allt endaði vel og brósi komst út á völl í þessa pínulitlu flugvél sem þjónustar Krókinn (öfund!).
Varúð, ekki lesa lengra ef þér leiðist bílaröfl!
Þessa einu helgi sem Bergþór Njáll var í heimsókn fékk ég start frá þremur ólíkum manneskjum og ég fékk aðstöðu til að hlaða geyminn yfir nótt hjá þeirri fjórðu og kann ég öllum þökk fyrir. Stóra vandamálið með bílinn minn í dag er þetta rafmagnsvesen og ég veit aldrei hvenær bíllinn fer í gang og hvenær ekki. Til að bæta gráu ofan á svart þá er bilaður hitamælir sem á að sjá til þess að sprengihólfin fái rétta bensínblöndu við ræsingu eftir því hvort það er kalt eða heitt úti. Bíllinn fær því oft ranga blöndu og fer ekki í gang fyrr en kannski í annarri eða þriðju tilraun, en þá er ég oft búinn að klára af rafgeyminum og næ ekki að ræsa vélina. Vandamálið stafar af afhleðslu einhvers staðar í öllu rafkerfinu og ég er ráðalaus og hef ekki hugmynd um hvaða vír er að leka allri orkunni. Ég hef meðal annars aftengt allar hurða- og skottperur en það bætti málin ekkert, en það var ekki fyrr en ég hafði skipt um rafgeymi og vandamálið hvarf samt ekki sem ég varð 90% viss um að ég hefði rétt fyrir mér með að þetta væri afhleðsluvandi. Ég hafði alltaf aftengt gamla geyminn eftir hverja ökuferð eftir að ég sá að það að aftengja allar hurða- og skottperur virkaði ekki. Nú var nýji geymirinn kominn í svo ég hætti að aftengja eftir hvern akstur. En eins og fyrr segir var nýji geymirinn skyndilega hleðslulaus í fyrsta sinn á ögurstundu þegar ég var að verða of seinn að sækja Bergþór Njál. Á laugardaginn datt okkur brósa í hug að athuga hvort það væri nóg vatn á nýja geyminum... og við fórum að fikta í honum sem endaði með að núna er ég líklega búinn að skemma geyminn þannig að nú er ekki nóg með að bíllinn afhlaði geyminn ef geymirinn er tengdur við hann, geymirinn sjálfur er farinn að afhlaðast þó hann sé ótengdur, og gerir það bara tvöfalt hraðar tengdur. Nú verð ég semsagt að gefa bílnum start í hvert sinn sem ég þarf að nota hann (eða hlaða geyminn yfir nótt), og ég þori varla að slökkva á bílnum fyrr en ég er aftur kominn heim. Já, í stuttu máli verð ég að henda skrjóðnum á verkstæði og láta finna út úr þessu, (og skipta um öxulhosu og laga pústið, bæði nýbilað) og jafnvel kaupa nýjan geymi! Argh, ég er nýbúinn að þurfa að eyða tugum þúsunda í að láta hjólastilla bílinn (svo dekkin étist ekki upp), fara með hann í skoðun, láta laga erfiðan bensínleka, kaupa föt (sem hefur setið á hakanum síðan áður en ég fór í FB svo ég átti engin heil föt eftir og ég bara varð að versla!) og fara í nauðsynlega tannlæknaferð . Semsagt, von mín um að geta skipt um bíl er að verða að engu því að í stað þess að geta safnað uppí er ég kominn í mínus aftur og ég mun enda á núlli í gróða þegar ég sel þetta kvikyndi! Já, ég var of seinn að skipta.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.6.2013 | 23:52
Júní mættur!
E.S. Ég var að lesa að Hermann Gunnarsson er látinn. Ég á eftir að sakna þess að heyra í honum eða sjá hann í fjölmiðlum. Hann var sannarlega frábær maður, hláturmildur og með hjartað á réttum stað og góð fyrirmynd á svo margan hátt. Mamma mín gerðist svo fræg í vetur að vera í þættinum hans á Bylgjunni í smá stund þar sem hún tók þátt í spurningakeppni ásamt annarri konu og stóð sig auðvitað með glæsibrag og ég get ímyndað mér að það hafi verið gaman að tala við Hemma í eigin persónu. Enginn getur komið í annars stað en allir hafa víst sinn tíma á jörðinni og hans spor á heiminn munu ekki hverfa sem betur fer.
Bloggar | Breytt 5.6.2013 kl. 15:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.5.2013 | 05:02
Það sem er að frétta ákkúrat núna
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.5.2013 | 02:12
Sumar, sumar :)
Bloggar | Breytt s.d. kl. 02:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.5.2013 | 22:37
Vikan í stuttu máli
Lífið er sannarlega ekki alltaf sanngjarnt. Haraldur frændi minn og Vala áttu von á barni í sumar, en því miður fæddist það nokkrum vikum of snemma. Gabríel Freyr Haraldsson lést um tvem vikum eftir að hann kom í heiminn, næstum alveg fullskapaður, fallegur drengur. Þau skýrðu hann daginn áður en hann kvaddi. Ég fór suður eftir vinnu á þriðjudaginn síðasta og fór í sorglega en fallega jarðarför á Akranesi daginn eftir á sólríkum degi. Þetta er í annað sinn sem þetta gerist og þau eru hetjur að komast í gegnum svona áfall tvisvar. Vonandi gengur þeim allt í haginn framvegis. Fyrst ég var kominn suður og það var frídagur á fimmtudaginn (sem var reyndar færður yfir á föstudaginn í vinnunni) þá tók það því ekki og borgaði sig ekki, að fara aftur norður bara til að vinna í einn dag og koma svo aftur suður til að vera yfir helgina, þannig að ég ákvað bara að missa úr tvo vinnudaga og var í fimm daga fyrir sunnan. Eftir smá yfirferð á bílnum með pabba þá kom ég Applausinum í gegnum skoðun, sem ég bjóst nú ekki við að myndi heppnast, en þetta þýðir að ég get farið að huga að því að setja hann í sölu. Ég náði að hitta fullt af ættingjum og vinum, fór í bíó með frænku minni og fór með mömmu og Sindra í golf en brósi er kominn með mikinn golfáhuga, skemmtilegt nokk, og fær ágætis útrás við að slá kúlurnar hverja á eftir annarri. Ég læt þetta duga í bili, hafið það sem allra best.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Guðmundur B. Sigurðsson
Tenglar
Mínir tenglar
- Gummi bloggar á spænsku Bloggið mitt þar sem ég æfi mig í að skrifa og tjá mig á spænsku.
Eldri færslur
2024
2021
2020
2019
2018
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Bloggin
Vinir, fjölskylda eða aðrir
- Haddi frændi
-
Pétur Olsen og co
Fyrrverandi vinnufélagi minn og vinir hans í sameiginlegu bloggi, bara flott hjá þeim! - Bergþór bróðir
- Elín frænka
- Þórhallur
- Ari
- Mary
- Anna Hendrix
- Mist
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar