Bloggfærslur mánaðarins, desember 2012
29.12.2012 | 03:53
Sorg og gleði
Bloggar | Breytt 26.1.2013 kl. 20:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.12.2012 | 00:49
Gleðileg jól!
Gæfan er með mér núna. Ég er kominn með vinnu á Sauðárkróki og hlakka mjög til að flytja þangað og prufa að búa á nýjum stað og kynnast nýju fólki. Krókurinn er stór bær en ekki of stór, vel staðsettur, með góða þjónustu og með hitaveituvatn, er hægt að biðja um meira? Eina vandamálið í augnablikinu er að ég er ekki búinn að finna mér húsnæði, en ég er það ákveðinn í að komast á Krókinn að ef ég verð óheppinn og finn ekkert fyrir janúarbyrjun þá fer ég frekar á gistiheimili til að byrja með en að hætta við. Það bara kemur ekki til greina að láta þetta tækifæri úr greipum renna. Ég líka verð að vinna og fá tekjur, og ég er búinn að hlakka lengi til að klára skólann (næstum búinn!) svo ég geti farið að vinna allt árið. Lífið er búið að vera í pásu í þrjú ár vegna peningaleysis, og ég geri mér fulla grein fyrir að ég er líklega að fara að fá lágmarkslaun til að byrja með, en það skiptir ekki máli, bara að ég sé með stöðugar tekjur, hitt kemur með tímanum. Ég er mjög sparsamur og mín áhugamál eru ekki dýr (nema ferðaáhuginn), en ef maður er í skóla og ekki með neinar tekjur á veturna, þá er alveg sama hvað maður er sparsamur, peningarnir klárast fljótt og þá er maður nánast úr leik í samfélaginu, því að næstum allt kostar peninga, að minnsta kosti einhverjar krónur. Það er bara óþolandi ástand að hafa ekki einusinni efni á að kaupa sér flík heilu mánuðina, en nú er sá tími á enda og framtíðin er björt. Eins og þið sjáið er ég búinn að aflæsa blogginu á ný svo það sé ekkert vesen að kíkja við! Gleðileg jól vinir og vandamenn og vonandi hitti ég ykkur sem flest áður en ég fer í burtu á nýja árinu og hafið það sem allra best.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.12.2012 | 01:40
Mmm, jólabjór!
Heilt á litið er ég ekkert fyrir áfengi. Það líða stundum allt að fjórir mánuðir á milli þess að ég drekki. En ég kaupi stundum léttbjóra og fæ mér eins og 2-3 slíka um helgar því að mér finnst bjór einfaldlega svo bragðgóður. Ég er ekkert fyrir alvöru fyllerí en enda þó alltaf á eins og 3-5 slíkum á ári. Maður verður nú að sleppa sér einstaka sinnum í góðra vina hópi, ég kæmist ekki einusinni upp með annað! En eins og ég segi, ég hugsa samt alltaf í upphafi ,,úff, nú byrjar ballið," en síðan skemmti ég mér auðvitað ærlega og allt er svo æðislegt (þið kannist við þetta, er það ekki?!
), svo kemur þessi hörmungar, hryllings morgundagur þar sem maður er ófær um að gera nokkurn hlut og þarf að borða og drekka vökva, en maður hefur enga löngun til þess, og maður hugsar ,,aldrei aftur... aldrei aftur!!!" Já, ég er mjög feginn að vera orðinn áhugalaus að mestu fyrir áfengi, sem er líka eins gott fjárhagslega, því að stjórnvöld hækka alltaf og hækka áfengisgjaldið vegna þess að þau hafa svo gaman af því að fá jafn mikið eða minna fé í kassann vegna minnkandi áfengissölu, en í millitíðinni bruggar landinn landa sem aldrei fyrr! En svo ég kafi nú ekki dýpra í leiðinlega pólitík þá verð ég nú að segja að Vífilfell/Víking er að standa sig alveg ótrúlega vel varðandi árstíðarbundna ölið sitt. Víking jólabjórinn er alveg fáránlega góður með þessa fullkomnu blöndu sem er einhvers staðar mitt á milli venjulega bjórsins og hins dökka. Ég mæli hiklaust með honum um jólin og þetta getur selst upp á hverri stundu svo að fyrir fólk sem á einhverja aura, öfugt við sjálfan mig, þá mæli ég með að það drífi sig strax í ríkið! Neinei, vonandi kaupi ég eina kippu eða svo, ég verð að gera það því að ekki fer ég meira á bar á þessu ári, ég einfaldlega get það ekki. Ég verð að eyða óvissunni um atvinnu strax eftir síðasta prófið mitt þann 13. des. því mér finnst ekkert verra en að vera hugsanlega foreldrum mínum byrði. Sama hvar ég enda þá ætla ég að gera gott úr því, vera sáttur og helst að endurgjalda hjálpina sem ég hef fengið á einn eða annan hátt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Guðmundur B. Sigurðsson
Tenglar
Mínir tenglar
- Gummi bloggar á spænsku Bloggið mitt þar sem ég æfi mig í að skrifa og tjá mig á spænsku.
Eldri færslur
2024
2021
2020
2019
2018
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Bloggin
Vinir, fjölskylda eða aðrir
- Haddi frændi
-
Pétur Olsen og co
Fyrrverandi vinnufélagi minn og vinir hans í sameiginlegu bloggi, bara flott hjá þeim! - Bergþór bróðir
- Elín frænka
- Þórhallur
- Ari
- Mary
- Anna Hendrix
- Mist
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar