13.11.2007 | 23:31
Slakað á
Hafði það ágætt fyrir sunnan. Gerði ekki helminginn af því sem ég ætlaði að gera. Verst var hvað ég var óduglegur í félagslífinu en þó hitti ég t.d. gömlu vinnufélagana hjá borginni sem var bara tær snilld, ég verð að halda sambandi við þetta úrvalsfólk.
Ég var eiginlega bara að slappa af, nákvæmlega eins og ég ætlaði því að ég var algerlega búinn að fá nóg af stressi og vinnu svo ég þurfti virkilega á þessu fríi að halda. Var bara edrú og nettur á því, skrapp bara í bíó með bróðir mínum Elvari og lék mér að því að gera skissur og teikna, eitthvað sem var orðið óralangt síðan ég gerði síðast. Ég var næstum búinn að gleyma hvað það er gaman að teikna maður.
Haldi'ði ekki að rúðuþurrkurnar á bílnum mínum hafi bilað á meðan ég var í Reykjavík. Alger klassi. Það virðist ætla að verða þrautin þyngri að komast á milli bæja í eitt skipti án þess að eitthvað smádót klikki sem samt er ekki hægt að vera án á Íslandi, eins og t.d. rúðuþurrkur! Síðan ég flutti þá hafa afturdempararnir klárast, mikilvæg baula dottið undan bílnum sem heldur við hjólabúnaðinn, ventill á einni felgunni hefur gefið sig og núna fór þurrkubúnaðurinn. En ég hef þó ennþá tröllatrú á þessum bíl, hann er þrátt fyrir allt sá besti sem ég hef átt, ég þarf bara að anda með nefinu og vera ekkert að æsa mig, klappa kvikindinu, mússímússí og allt það og þá klikkar hann ekki aftur.
Um bloggið
Guðmundur B. Sigurðsson
Tenglar
Mínir tenglar
- Gummi bloggar á spænsku Bloggið mitt þar sem ég æfi mig í að skrifa og tjá mig á spænsku.
Eldri færslur
2024
2021
2020
2019
2018
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Bloggin
Vinir, fjölskylda eða aðrir
- Haddi frændi
-
Pétur Olsen og co
Fyrrverandi vinnufélagi minn og vinir hans í sameiginlegu bloggi, bara flott hjá þeim! - Bergþór bróðir
- Elín frænka
- Þórhallur
- Ari
- Mary
- Anna Hendrix
- Mist
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.