21.8.2013 | 04:15
Allt gengur eins og í sögu!
Nú er kominn tími til að segja betur frá því hvað er að gerast hjá mér með vinnu og bílamál! Ég er semsagt, eins og fyrr segir, kominn með nýja vinnu, nánar tiltekið hjá fiskvinnslunni Íslandssögu á Suðureyri í Súgandafirði í rétt um korters akstursfjarlægð frá Ísafirði. Fyrsti vinnudagurinn verður mánudaginn 26. ágúst næstkomandi svo ég hef nokkra daga til að kíkja á fjölskyldu og vini hér í Reykjavík áður en ég fer vestur kannski á föstudaginn til að venjast umhverfinu aðeins áður en ég hef störf. Vinnuveitandinn er strax búinn að redda mér herbergi með sameiginlegri eldunaraðstöðu á Suðureyri svo það er allt til reiðu og ég er sloppinn við að þurfa að stressa mig við að finna mér samastað í tæka tíð. Það bætist við gleðina að í dag (20.) tókst mér að finna Daihatsu Applausinum mínum nýjan eiganda eftir að hafa átt þann ágæta grip í sjö ár og ekið hann 115.000 km. en hann var í 88.000 km. er ég keypti hann á sínum tíma. Hjalti frændi er duglegur að hjálpa mér í bílamálum en hann hefur bent mér á ágætis bíl í staðinn fyrir Applausinn en þar er um að ræða Subaru Outback sem er fjórhjóladrifinn skutbíll sem ég hef ákveðið að skella mér á. Það verður ekki slæmt að komast á bíl sem leikur sér að snjónum sem undantekningalítið kyngir niður fyrir vestan og víðar á veturna. Gleði gleði!! Meira næst!!!
Um bloggið
Guðmundur B. Sigurðsson
Tenglar
Mínir tenglar
- Gummi bloggar á spænsku Bloggið mitt þar sem ég æfi mig í að skrifa og tjá mig á spænsku.
Eldri færslur
2024
2021
2020
2019
2018
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Bloggin
Vinir, fjölskylda eða aðrir
- Haddi frændi
-
Pétur Olsen og co
Fyrrverandi vinnufélagi minn og vinir hans í sameiginlegu bloggi, bara flott hjá þeim! - Bergþór bróðir
- Elín frænka
- Þórhallur
- Ari
- Mary
- Anna Hendrix
- Mist
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Flottur Gummi, til hamingju :)
Anna María (IP-tala skráð) 23.8.2013 kl. 14:52
Takk Anna mín. Ég er kominn á nýja bílinn og er að fara að leggja af stað til Hólmavíkur. Gisti þar eina nótt og held svo áfram til Suðureyrar líklega á laugardaginn, þá byrjar ballið! Spennandi
Guðmundur Björn Sigurðsson, 23.8.2013 kl. 19:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.