18.5.2013 | 02:12
Sumar, sumar :)
Loksins, loksins, það er komið eitthvað sem líkist sumarveðri. Það var sól, nokkuð hlýtt og næstum logn á Króknum í dag (17. semsagt) og það er spáð góðu veðri um helgina. Nú eru allir á faraldsfæti um hvítasunnuhelgina og sumir jafnvel að fara í fyrstu útilegu sumarsins, en ég fer nú ekki langt held ég því ég verð að standa mig í stykkinu fyrst ég komst upp fyrir núllið. Ég hefði alveg verið til í að skjótast til Reykjavíkur og horfa á Evróvisiónið með fjölskyldunni og kíkja svo í partí hjá vini mínum sem ég veit að verður haldið! En ég á erindi suður um næstu helgi, þá fer ég loks til tannsa á mánudeginum og fyllt verður í jaxlinn þar sem stykkið losnaði er ég aulaðist til að tyggja karamellu sem var í páskaegginu mínu um þar síðustu páska. Nú hef ég efni á viðgerðinni öfugt við þegar þetta gerðist, en þá var ég auðvitað enn í FB og fátækur námsmaður, ekki það að ég sé orðinn ríkur núna hehe. Ég ætti að halla mér aðeins núna, þetta gæti orðið spennandi útivistarhelgi hjá mér hér fyrir norðan því að þó ég fari ekki suður þá er ekkert sem segir að ég kíki ekki í einhvern nágrannabæinn til tilbreytingar. Mig hefur t.d. lengi langað að rúnta á Sigló og Ólafsfjörð. En svo gæti líka verið að ég skelli mér í fjallgöngu, enda loksins komið frábært gönguveður.
Um bloggið
Guðmundur B. Sigurðsson
Tenglar
Mínir tenglar
- Gummi bloggar á spænsku Bloggið mitt þar sem ég æfi mig í að skrifa og tjá mig á spænsku.
Eldri færslur
2024
2021
2020
2019
2018
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Bloggin
Vinir, fjölskylda eða aðrir
- Haddi frændi
-
Pétur Olsen og co
Fyrrverandi vinnufélagi minn og vinir hans í sameiginlegu bloggi, bara flott hjá þeim! - Bergþór bróðir
- Elín frænka
- Þórhallur
- Ari
- Mary
- Anna Hendrix
- Mist
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.