Hugleiðingar

Mér finnst fólk einblína allt of mikið á hið neikvæða í kringum sig, og sérstaklega hið neikvæða við annað fólk. Mér er fyrirmunað að skilja hvers vegna. Ekkert dregur orkuna og lífsgleðina eins hratt úr fólki eins og þegar það horfir á heiminn í gegnum neikvæðni-gleraugunun og leggur alla galla og mistök fjölskyldu og vina á minnið á kostnað hins góða. Fólk verður að reyna að hittast í miðjunni og gefa örlítið eftir. Vera það sjálft og leyfa öðrum að vera það líka. Og rifja öðru hvoru upp góðu minningarnar um hluti sem fólk hefur gert saman. Það er hægt að hafa góð áhrif á fólk en það er ekki hægt að stjórna fólki. Því meiri reiði og neikvæðni sem einhver fær á sig þegar honum eða henni er sagt frá neikvæðum eiginleikum sínum, því meiri eru líkurnar á að sú manneskja reisi varnarmúr í stað þess að hlusta og koma til móts við mann. Þetta getur orðið vítahringur sem leysist aldrei nema með því að skoða sjálfan sig aðeins líka.

Ég er samt alls ekki að segja að maður eigi bara að láta sig hafa það ef einhver komi illa fram við mann dags daglega, alls ekki. En það er ekki sanngjarnt að sturta því neikvæða í fari manneskju á vogarskálina en henda svo hinu jákvæða í ruslið og meta manneskjuna svo, bara af því að vináttan eða sambandið hefur staðið yfir svo lengi. Það er ekki gæfurík aðferð. Við erum og verðum alltaf einstaklingar sem verða aldrei alveg eins, svo það gildir að reyna til þrautar að finna lausn áður en gefist er upp. Það er þess virði, því að sársaukinn og missirinn við hinn valkostinn verður oftast, þó ekki alltaf, en oftast, miklu meiri. Það leysir mikinn vanda að tala saman og segja frá vilja sínum og gera kröfur, en hlusta líka á vilja hins aðilans og slá svo aðeins af kröfunum og líta framhjá sumu. Þá líður oftast báðum aðilum miklu betur. Svo er stundum líka ekki rétti tíminn til að gera þetta, þá verður bara að bíða næsta dags.

Það er gott að hreinsa hugann með því að fara út og gera eitthvað skemmtilegt einn og án hins aðilans og leyfa hinum aðilanum stundum að fara eitthvað án manns í smá stund. Svo þarf að muna eftir öllum hinum í fjölskyldunni og vinahópnum og heimsækja þá, en bíða ekki eftir að aðrir komi til manns sjálfs. Ég er reyndar mikill einfari í eðli mínu og mér líður mjög vel einum með sjálfum mér. En ef ég léti líða mjög langan tíma líða á milli án þess að rækta fjölskyldu- og vinaböndin þá færi mér að líða verr.

Jæja, þetta er orðin mikil langloka hjá mér, en ég fann núna hjá mér þörf fyrir að skrifa hér aðeins því mér hefur fundist eins og fólki í kringum mig hafi vantað að vera ögn jákvæðara gagnvart sjálfu sér og öðrum. Samt, þegar ég hef reynt að sjá ástæðuna fyrir skortinum á hamingjunni, þá sé ég oftast ekki nema tiltölulega heilbrigt fólk, umvafið fjölskyldu og vinum, en sem er samt vansælt. Stress, peningar, neikvæðar fréttir, tap, endalaus stjórnmál (sem maður ræður svo litlu um), vinnan, heimilisstörfin og aðrir hlutir, eða annað fólk má ekki íþyngja fólki svona mikið. Sumarið er jú komið og tækifærin eru mörg og það er full ástæða til þess að vera glaður. Ég er fyrrverandi þunglyndissjúklingur og held því að ég sjái stundum heiminn skýrar en margir eftir að hafa sloppið í heilu lagi úr viðjum þessa hræðilega sjúkdóms. Og ég vil endilega deila hugleiðingum mínum með öðrum, tja, allavega í þetta skiptið. En jæja, nú verð ég að halda áfram að læra fyrir lokaprófin mín og stressa mig agnarögn yfir þeim, en bara agnarögn! :)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Guðmundur B. Sigurðsson

Höfundur

Guðmundur Björn Sigurðsson
Guðmundur Björn Sigurðsson
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Bloggin

Vinir, fjölskylda eða aðrir

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband